26.4.2007 | 14:01
Ég er alvöru kona!
Þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur? Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig. Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi. Fínar dömur: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur og nudda henni á ennið. Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama. Fínar dömur : Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það. Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann. Fínar dömur : Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim. Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum. Fínar dömur: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn. Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara . Fínar dömur : Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip. . Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna! Fínar dömur: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna. Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín? |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.