Vatn vs. Kók

VATN

75% Bandaríkjamanna eru með krónískan ofþurrk. (Á sennilega við helminginn af íbúum jarðar)
Hjá 37% Bandaríkjamanna er þorstaskynjunin orðin svo slök að hún er oft túlkuð sem hungur.

Jafnvel vægur ofþurrkur getur hægt á brennslukerfi líkamans um 3%.

Eitt glas af vatni nægði til að slá alveg á hungurverki seint að kvöldi hjá næstum 100% þátttakenda
í könnum hjá Háskóla í  Washington .

Ónóg neysla af vatni, er í FYRSTA SÆTI yfir það sem veldur þreytu yfir daginn.

Niðurstöður úr einni könnun gefa til kynna að drekki fólk 8-10 glös af vatni yfir daginn
gæti það létt á bakverkjum og liðaverkjum hjá allt að 80% þeirra sem þjást af þessum verkjum.

Ef vatnið í líkamanum minnkar um aðeins 2% getur það valdið lélegu skammtímaminni,
erfiðleikum með einfalda stærðfræði og skorti á einbeitingu við lestur á tölvuskjá eða annað prentmál.

Að drekka 5 glös af vatni á dag dregur um 45% úr áhættu á krabbameini í þörmum auk þess sem það getur dregið
allt að 79% úr áhættu á brjóstkrabba og lækkar áhættu karlmanna á blöðruhálskrabbameini um 50%.

Viltu ekki fá þér vatnssopa???

KÓK


Í mörgum bandarískum fylkjum er vegalögreglan með 10 lítra af kóki bílunum hjá sér til að þrífa blóð af vegum eftir umferðarslys.

Þú getur sett T-Bone steik í skál af kóki og hún verður horfin eftir 2 daga.

Til að hreinsa klósettið:
Helltu einni dós af kók ofan í klósetið, bíddu í eina klukkustund og sturtaðu svo niður. Sýran í kókinu leysir upp bletti.

Til að fjarlægja ryðbletti af krómstuðurum: Dýfðu krumpuðum álpappír í kók og nuddaðu stuðarann.

Til að hreinsa rafgeyminn í bílnum: Helltu einni dós af kók yfir rafgeymatengslin.

Til að losa ryðgaðan bolta (skrúfu). Rennbleyttu tusku með kóki og haltu henni að boltanum í nokkrar mínútur.

Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði: Helltu einni dós af kók í þvottavélina bættu við þvottaefni og þvoðu eins og venjulega. Kókið leysir upp fitublettina.

Framrúðan á bílnum þínum hreinsast líka vel með kóki.

Virka efnið í kók er phosphoric acid.  Ph í kók er 2.8. Það getur leyst upp nögl á ca fjórum dögum.

Til að flytja Coca-Cola sýrópið (fullan styrk) þurfa vöruflutningabifreiðar að hafa á sér viðvörunarskilti
sem einungis eru notuð á bíla sem annast flutning á MJÖG ÆTANDI EFNUM.

Dreifingaraðilar Coca-Cola hafa notað gosdrykkinn í um það bil 20 ár  til að hreinsa vélarnar í trukkunum hjá sér.

Langar þig enn í hressandi dós af Cola drykk?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Nei - má ég þá frekar biðja um Pepsi-Max........

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 30.5.2007 kl. 15:45

2 identicon

Heyrðu frænka....gjöra svo vel að hringja í mig helst í gær  það er erfiðara að ná í þig en það er að ná í mig

Ingibjörg Thors (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 09:42

3 Smámynd: Ólafur Þór Gunnarsson

Það hafa fleiri dáið af því að drekka vatn en kók!

Í Alvöru talað! 

Ólafur Þór Gunnarsson, 31.5.2007 kl. 10:02

4 identicon

Hahahahaha!!!   Ég vissi að I.G. mundi svara svona....nákvæmlega svona!!!! G'OÐ!!!!Er þá meiningin að drekkja Alzheimersjúklingum??? Nei, Guðrún....svona segir maður ekki!!!! Þeir bara gleyma að drekka vatn!!! Verður svona vítahringur!!!    H:)

Hjördís G. Thors (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 11:56

5 Smámynd: Mafía-- Linda Róberts.

það sést best á þér hvað vatnið er holt, svona líka falleg og greind..

Mafía-- Linda Róberts., 2.6.2007 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband